Út er komin á vegum Svarfdælasýsls forlags sf. bókin Sjávarplássið Dalvík eftir Jóhann Antonsson. Þar er í máli og myndum rakin saga útgerðar og fiskvinnslu sem hófst með útgerð bænda í Svarfaðardal og fylgdi síðan þéttbýlismyndun á Böggvistaðasandi, síðar Dalvík.

Á Dalvík er rík og rótgróin sjávarútvegshefð og þjónustustarfsemi tengd atvinnugreininni. Þar hafa löngum starfað dugmiklir frumkvöðlar sem styrkja byggðina og atvinnulífið með framsýni, áræðni og sérhæfðri, sjávartengdri starfsemi af ýmsu tagi.
Allt þetta er rakið í bókinni, kryddað óborganlegum mannlífssögum og prýtt sögulegum ljósmyndum sem margar hverjar hafa aldrei birst fyrr á opinberum vettvangi.
Þröstur Haraldsson hannaði og braut um bókina en Þorleifur Rúnar Örnólfsson hannaði kápuna. Stefán Björnsson tók myndina framan á kápu en Svanfríður Jónasdóttir myndaði bókarhöfund og eiginmann sinn á bakhliðinni á táknrænum stað, við Dalvíkurhöfn.
Höfundurinn, Jóhann Antonsson, er Dalvíkingur og viðskiptafræðingur með fjölþætta reynslu af sjávarútvegi. Hann var stjórnandi í fyrirtækjarekstri, sinnti frumkvöðlastarfsemi og var ráðgjafi stjórnvalda og fyrirtækja um árabil. Hann hefur skrifað fjölda blaðagreina og frétta um sjávarútveg og sjávarútvegsfyrirtæki í Dalvíkurbyggð og gjörþekkir því viðfangsefni sitt.

Jóhann segir meðal annars í formála bókarinnar:
Þegar ég nú lít um öxl og virði fyrir mér atburðarásina teiknar sig upp mynd af því hvernig hvert tímabilið tekur við af öðru. Íbúar og fyrirtæki bregðast sífellt við nýjum aðstæðum og byggja á reynslu og þekkingu sem safnast hefur í áranna rás. Mikill mannauður er í hryggjarstykkið í þróuninni, hvort heldur talað er um fólkið í fiskvinnslunni eða karlinn í brúnni.
Forlagið dreifir bókinni og hún er seld í helstu bókaverslunum. Bókina má líka nálgast til kaups í afgreiðslu Bókasafns Dalvíkur, hjá bókarhöfundi á Dalvík og hjá verkefnisstjóra forlagsins í Reykjavík, atli@sysl.is.
- Á toppi fréttarinnar er ein fjöldamargra mynda í bókinni. Hana tók Jón Þ. Baldvinsson um borð i Dalvíkurtogaranum Björgvin EA 311 á áttunda áratugnum. Lengst til vinstri er sjálfur núverandi sjávarútvegsráðherra lýðveldisins, Kristján Þór Júlíusson. Með honum eru Gylfi Ægisson og Valur Hauksson.